Live at Skarkali
Um verkefnið
Þegar Of Monsters and Men voru að undirbúa tónleikaferðalag um heiminn var okkur boðið inn í hljóðverið þeirra til að taka upp innilegan, lifandi flutning. Hugmyndin var að fanga hljómsveitina í rýminu þar sem tónlistin verður til, þar sem hún spilaði fyrir lítinn hóp vina og fjölskyldu frekar en mikinn mannfjölda á tónlistarhátíð. Þannig fengu aðdáendur að sjá hljómsveitina í návígi rétt áður en hún lagði af stað.
Til að halda rýminu lausu við búnað og umstang voru aðeins tveir tökumenn. Nokkrum myndavélum var komið fyrir víðs vegar um rýmið, hverri staðsett að hún sæist ekki í mynd hinna. Ein myndavél var svo á ferðinni um rýmið og komst nálægt bæði hljómsveitinni og fólkinu sem fylgdist með. Þannig náðum við öllu sem þurfti án þess að raska andrúmsloftinu. Útkoman er lifandi flutningur sem er bæði persónulegur og fágaður, tekinn upp á hér heima rétt áður en tónleikaferðalagið hófst.
Viðskiptavinur :
Of Monsters and Men
Ár :
2025
Leikstjórn
Bjarki Jóhanns
Kvikmyndatökustjóri
Eyþór Jóns
Tökumaður :
Bjarki Jóhanns
Tökumaður :
Eyþór Jóns
Klipping :
Bjarki Jóhanns
Litvinnsla :
Eyþór Jóns








